{"type":"rich","version":"1.0","title":"bjarni wrote","author_name":"bjarni (npub1km…305ep)","author_url":"https://nostr.now/npub1kmu9dl7qda4360xxl0h8tt0l4mfy0qjm2zujnudaxjp6vk63nc6qf305ep","provider_name":"njump","provider_url":"https://nostr.now","html":"Kannski er líka vandamálið með íslensku útgáfuna, að íslensk tækni hugtök eru ekki alltaf nóu “sexý” ☺️\n\nEf ég les þessa íslensku útgáfu með það til hliðsjónar að lesandi hafi aldrey kynnt sér Bitcoin og er jafnvel ekki beint tækni sinnaður, þá get ég sætt mig betur við þessa þýðingu.\nLesandi nær kannski betur að tengja betur við orð eins og “hnútur” frekar en “nóða”, eða “króna” í staðinn fyrir “mynt”.\n\nÞað hugtak sem ég set samt efst á listann minn sem mætti endurskoða er orðið “blokk”.\nÞar sem nú þegar er alltaf talað um “bálkakeðju” á íslensku, væri líklega réttast að kalla þetta einnig “bálki” í “hvítbókinni” en ekki “blokk”.\n\nÍ bókfærslu getur t.d. orðið “bálki” líka vísað til kassa fullan af bókhaldsgögnum raðað í ákveðni tímaröð."}
